Á öllum starfsstöðvum félagsins liggur matvæla- eða fóðuröryggiskerfi til grundvallar starfseminni eins og lög kveða á um. Þar eru hráefni og öll skref framleiðslunnar metin með tilliti til hættu og hún lágmörkuð með kerfisbundnum hætti. Allar afurðir félagsins eru framleiddar samkvæmt þessum gæðakerfum. Allar starfsstöðvar eru undir opinberu eftirliti Matvælastofnunar (MAST) sem fylgist með að farið sé að lögum og reglum. Eftirlit MAST byggist á eftirlitsskoðunum sem í sumum tilfellum eru framkvæmdar án nokkurs fyrirvara.
Í starfsstöðvum í landi byggjast þessi kerfi á alþjóðlegum stöðlum. Starfsemi félagsins í fiskiðjuverum í Reykjavík og á Vopnafirði eru vottaðar samkvæmt IFS-staðlinum (International Featured Standards). Þetta er alþjóðlega viðurkenndur staðall og einn hinna mest notuðu á sviði matvælaöryggis. Þessir meginstaðlar matvælaöryggis eru samræmdir undir merkjum Global Food Safety Initiative (GFSI). Hlutfall af afurðum félagsins, sem framleitt var í starfsstöðvum með vottun frá þriðja aðila gagnvart alþjóðlegum matvælaöryggisstaðli, var 72,7%.
Starfsstöð | Vottun |
---|---|
Norðurgarður - fiskiðjuver | IFS foods |
Akranes – fiskiðjuver* | IFS foods |
Vopnafjörður – fiskiðjuver | IFS foods |
Vopnafjörður - Uppsjávarfrystihús | IFS foods |
Akranes – Uppsjávarfrystihús** | |
Frystiskip |
*Starfsemi hætt á árinu.
**Framleiðsla loðnuhrogna er fyrir utan umfangsvottun þar sem um mjög stuttan tíma er að ræða og erfitt fyrir úttektaraðila að sjá framleiðsluna.
Fiskmjölsverksmiðjur á Akranesi og Vopnafirði eru vottaðar samkvæmt FEMAS-staðli (Feed Materials Assurance Scheme).
Starfsstöð | Vottun |
---|---|
Vopnafjörður - Fiskmjölsverksmiðja | FEMAS |
Akranes - Fiskmjölsverksmiðja | FEMAS |
HB Grandi veiðir einungis villtan fisk og eru afurðir félagsins í öllum tilfellum hreinar og náttúrulega heilnæmar sjávarafurðir. Rekjanleiki afurða er mikilvægur hluti matvælaframleiðslu. Matvæla- og fóðuröryggiskerfi HB Granda byggjast á því að rekja megi vöruna frá uppruna hennar og allt til viðskiptavinar. Við veiðar eru skráðar nákvæmar upplýsingar um afla, svo sem veiðisvæði, veiðarfæri, samsetningu afla, magn og fleira. Uppruna hráefnis í vinnslu er svo haldið til haga og hann tengdur við tilbúnar vörur. Enn fremur er haldið utan um ráðstöfun allra afurða. Þannig eru allar afurðir rekjanlegar frá viðtakanda og aftur til hráefnis. Þessi rekjanleiki er prófaður reglulega í innra eftirliti félagsins og einnig í ytri úttektum á kerfum félagsins, meðal annars í úttektum tengdum upprunavottunum.
Afurðir félagsins eru í öllum tilvikum merktar í samræmi við reglur um merkingar á sjávarfangi. Þannig er ávallt ljóst um hvaða fisktegund og veiðisvæði er að ræða og eins hvernig veiðarfæri voru notuð. Opinberir eftirlitsaðilar gerðu engar skriflegar athugasemdir við merkingar á vörum félagsins á árinu. Engar innkallanir hafa verið gerðar á árinu, hvorki vegna merkinga né annarra orsaka. Á því tímabili, sem skýrslan nær til, voru hvorki skjalfest nein alvarleg frávik frá reglum félagsins varðandi upplýsingagjöf og merkingar afurða félagsins, né hefur félagið verið sektað vegna þessa.
Hluti af vottuðum gæðakerfum félagsins er ferli við mat á ánægju viðskiptavina. Verklagið felur í sér að matið eigi að ná til viðskiptavina sem standa fyrir að minnsta kosti 80% af veltu. Þetta mat fer fram árlega og var síðast gert í desember 2017.
HB Grandi leggur sitt af mörkum með góðri umgengni um þá auðlind sem fiskistofnarnir eru. Félagið fer eftir öllum þeim reglum og samþykktum sem gilda um veiðar og hefur enga aðkomu að sjóræningjaveiðum (Illegal, Unreported and Unregulated (IUU) Fishing).
Mikilvægt er að skila vistkerfi sjávar í jafn góðu eða betra ástandi til komandi kynslóða. Á því byggist framtíð félagsins.
Fiskveiðistjórnun á Íslandsmiðum byggist á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006. Þau grundvallast á aflamarkskerfi í þeim tegundum sem veiðar eru takmarkaðar á. Þetta samræmist því sem alþjóðasamfélagið hefur skilgreint sem góða stjórn fiskveiða á vettvangi FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld, í samráði við hagsmunaaðila, vinna ötullega að því að tryggja sjálfbæra nýtingu á auðlindinni. Ákvarðanir eru ávallt teknar á vísindalegum forsendum og er þar byggt á starfi Hafrannsóknastofnunar.
Fiskverndun á Íslandsmiðum byggist á þremur grundvallaraðferðum:
Árið 2007 var yfirlýsing um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga gefin út, en hana undirrituðu sjávarútvegsráðherra, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, fiskistofustjóri og formaður Fiskifélags Íslands. Yfirlýsingin var svar við kröfum markaða um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og hafði þann tilgang að upplýsa kaupendur um hvernig stjórnun fiskveiða er háttað á Íslandi og að stjórnunin væri byggð á bestu vísindalegri þekkingu. Jafnframt kemur fram að íslensk stjórnvöld skuldbindi sig að fara að öllum alþjóðalögum og samningum um umgengni við auðlindir sjávar, sem þau hafa undirritað. HB Grandi var stofnfélagi í sjálfseignarstofnuninni Ábyrgar fiskveiðar, sem stofnuð var árið 2011. Tilgangur félagsins er að eiga og annast rekstur vörumerkja um ábyrgar fiskveiðar, gerð og viðhald samninga um vottun ábyrgra fiskveiða, miðlun upplýsinga um fiskveiðar Íslendinga með sérstaka áherslu á kaupendur og neytendur íslenskra sjávarafurða og önnur skyld verkefni. Markmið félagsins er að stuðla að og viðhalda ábyrgum fiskveiðum til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir.
Vottaðir stofnar skv. IRF | Upphafstími vottunar | Staða |
---|---|---|
Þorskur | Desember 2010 | Í gildi |
Ufsi | Október 2013 | Í gildi |
Ýsa | Október 2013 | Í gildi |
Gullkarfi | Maí 2014 | Í gildi |
Allar veiðar HB Granda innan íslenskrar lögsögu úr þessum stofnum falla undir vottunina á stofnunum. Starfsstöðvar fyrirtækisins í Reykjavík og Vopnafirði eru jafnframt með rekjanleikavottun sem staðfestir að þær vörur sem framleiddar eru, séu rekjanlegar frá veiðum (e.chain of custody).
HB Grandi er hluthafi í ISF (Icelandic Sustainable Fisheries) sem var stofnað árið 2012 af fyrirtækjum í veiðum, framleiðslu og sölu íslenskra sjávarafurða. Tilgangur Iceland Sustainable Fisheries (ISF) er að afla vottana á veiðarfæri og fiskistofna sem nýttir eru við Ísland. ISF leitar vottana gagnvart staðli Marine Stewardship Council (MSC) og hafa hluthafar félagsins aðgang að vottun tegunda sem eru veiddar í íslenskri lögsögu.
Allar starfsstöðvar félagsins hafa rekjanleikavottun MSC (chain of custody) sem gerir HB Granda kleift að selja afurðir sem unnar eru úr MSC vottuðum stofnum sem slíkar.